1987
28.01.2008 14:21:36 / Lína

no title

R.I.P

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 12:05:51 / Lína

AFMÆLIIIII

það er ekkert minna en 21 ÁRS afmæli hjá einni af okkur í dag!
og er það hún ÍRIS MIST sem á 21 ÁRS afmæli í dag!!!
Hjartanlega til hamingju elskan frá okkur í 1987, vona að þú eigir góðann dag med masser af kager og chokolade ;)

kys & kram
Lína og restin af 1987..... :)

» 4 hafa sagt sína skoðun

22.12.2007 15:20:06 / Lína

já SÆL!

eigum við eitthvað að ræða það hvað það var gaman í gær?
just wanted to say, TAKK fyrir mig strákar, Dabbi, Daði óli og Kiddi, veislunar ykkar voru rosa flottar og partýið geggjað vel hepppnað :) skemmti mér konunglega og veit að allir gerðu það líka :)
En núna er ég rosa þreytt stelpa hehe, ætla að skella mér niður á Laugarveg og fá smá jólastuð í æð ;)
Veit ekki alveg með kvöldið, hvort é gmeiki að djamma..... en kemur í ljós!!
ég er allavega til í tjill, spólu og spjallerí ,, ef einhver er game þá láta mig endilega vita :)

ég er ekki alveg að sjá fyrir mér þessa síðu endast eitthvað mikið lengur, spurning um að loka henni á nýársdag? og bara nýtt blogglaust ár... hvað segiði um það? ég er eila orðin meira hútt á myspace , og flestar af okkur hehe'

anyhow,
lpeace and love :)
Læn!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 19:58:38 / Sólveig

Kvöldið...

Bjór á fimmtudaginn?

 Við stelpurnar ætlum á Áttuna í bjór eða þrjá, er ekki frá því að þetta verði fyrsti hittingurinn í svona tvo mánuði. Hvet ykkur hin til að mæta, the more the marrier :)

 Uuu.. Íris Mist var að setja inn gamlar myndir hérna vinstra megin í aðalvalmynd, misljótar en gaman að þeim.

 Síða sem ég datt inn á og langar að deila með ykkur hinum, annars er ég líklegast seinust að uppgötva þetta... eins og með svo margt. Allavega slóðin er http://www.ovguide.com/

Svo þar sem að jólin fara að nálgast þá læt ég þetta fylgja:

Jólagjafalistinn hennar ömmu

Elskulega fjölskylda, mér datt í hug fyrir þessi jól að senda ykkur smábréf um jólagjafir. Þar sem plássið er farið að minnka hjá mér, en þið öll svo elskuleg að færa mér gjafir fyrir hver jól.

Ég biðst undan því að fá fleiri flókainniskó. Ég á orðið lager sem endist mér út ævina.

Ég vil líka segja ykkur að ég á nóg bæði af pottaleppum og svuntum.

Ég á orðið 7 flónelsmorgunsloppa úr Rúmfatalagernum, og þarf ekki fleiri í bili. Auk þess þykir mér eldrauður litur fallegri en þessi gammeldags pink kerlingarlitur.

Myndir af börnum og barnabörnum eru allt í lagi, en best er að vera ekkert að setja þær í ramma, ég vil heldur setja þær inn í albúm, þar sem allir veggir eru orðnir þaktir af myndum, svo hvergi er auður blettur.

Í Guðanna bænum ekki fleiri smástyttur, hvorki gler, keramik eða tré. Ég þurfti að setja tvo stóra fulla kassa niður í kjallara eftir síðustu jól.
Og ég er orðin svo fótafúin.

Bækur eru svo sem allt í lagi, en ég á orðið 10 biblíur, les þær reyndar aldrei, og allskonar ævisögur og heilsubækur. Ef þið viljið gefa mér bækur, þá vil ég frekar Arnald Indriða, eða Agötu Christie.

Og ég hlusta frekar á Led Zepplin og Nirvana en Hauk Mortens eða Karlakór Reykjavíkur.

Sem betur fer hef ég losnað við öll fótanuddtækin með því að gefa þau á tombólur, nema þetta eina sem ég nota undir blóm á svölunum.

Ég verð að segja eins og er, að ég hefði í staðinn fyrir þennan dýrindis lazerboystól sem þið tókuð ykkur saman og splæstuð á mig í fyrra, viljað hljómflutningsgræjur eða tölvu. Sit afar sjaldan í svona stól, því það er erfitt að standa upp úr honum. Og ég nota tölvu frekar, og þykir meira gaman að háværri rokktónlist.

Svo ætla ég að benda ykkur á að þið verðið að koma jólagjöfunum ykkar snemma til mín þetta árið, því ég hef ákveðið að skella mér til Kanarí um jólin, við ætlum nokkur saman gamlingjar og djamma og djúsa. Vonandi verðið þið stillt og góð á meðan.

Sjáumst á næsta ári,

Amma

 

Sólveig kveður í bili, þakka ykkur sem enn kíkja á þessa blessuðu síðu kærlega fyrir lesturinn! Veriði sæl.



» 2 hafa sagt sína skoðun

20.10.2007 17:08:00 / Lína

síðan er GREINILEGA DAUÐ eftir að myspace kom!!! dí

allavega þá langaði mig bara að deila með ykkur hversu FKN óheppin ég var í gær á djamminu! ;)

Fyrst missti ég símann minn og skjárinn splúndraðist!
Svo skar ég mig á skjánum og það blæddi úr þessu litla sári eins og ég veit ekki hvað!
Svo fékk ég FKN pepsi max flösku í hausinn! því einhver FKN HÁLFVITI og fæðingar gerpi kastaði henni bara upp í loft úr fjöldanum sem var að dansa og hún lenti s.s. í höfðinu á mér og það var byt he way ÓGEÐSLEGA vont, næstum farin að gráta sko!
Svo var é gða fara út þessu lika skemmtilega partýi nema hvað að ég og önnur stelpa löbbum beint á hvort aðra og hún hellir heilum stórum bjór yfir mig alla í leiðinni!
GVUUUUUÐ MINN GÓÐUR HVAÐ ÞETTA VAR EKKI MITT KVÖLD!
En takk samt fyrir,

góða skemmtun í kvöld fólk!
og stelpur,
DRULLIST til að blogga oftar! við erum ekki svona latar sko!
Elska ykkur allar mikið og sakna ykkar!
PíZ !!!!

» 3 hafa sagt sína skoðun

06.10.2007 19:24:37 / Eydís

Er síðan dauð...

jæjæ jæjæ.... Djamm í kvöld...???

 Low ´jú guys.. þurfum að fara að hittast ... éta saman eller noget..

 

kv. Eydís

 

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 10:56:43 / Lína

STÓR AfMÆLI!!! <3

Hún á afmæli í dag,
hún á afmæli í dag,
hún á afmæli hún THELMA KRISTÍN SNORRADÓTTIR OLSEN
hún á afmæli í dag!

Hún er 20 ÁRA Í DAG,
hún er 20 ára í dag ,
hún er 20 ÁRA HÚN THELMA KRISTÍN SNORRADÓTTIR OLSEN
hún er 20 ára í dag!!!!!!

VEih veih veih!!!!

Hjartanlega til hamingju með þennan merka áfanga í lífi þínu elsku Thelma mín,
Veit að þú átt eftir að eiga skemmtilegan og æðislegan afmælisdag :)
Því í kvöld verður dúndurstuð!!!
beberé mucha cerveza esta noche mi amiga guapa!!!!

te quiero!!!

Lína & restin af 1987

<3

» 3 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 18:29:45 / Sólveig

Airwaves

Vildi bara láta ykkur vita að salan á Iceland Airwaves er hafin!

 

Hvet ykkur til að drífa í því að kaupa miða, það er gert akkúrat hér:

http://midi.is/tonleikar/1/4850/


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.09.2007 00:40:04 / Lína

HOLAAAAAAAAA

góða kvöldið ástirnar mínar!!!!!!!! vildi bara segja ykkur að síðan okkar er EKKI AÐ deyja!!! við stelpurnar erum bara að drukkna í skólanum og heimavinnu og ég ei ekki hvað??????? hehehe alavega er ÆTLUM við að vera rosalega duglegar að blogga núna í vetur og bara svo ég geti montað mig út af því þá er ég að fara tll DK KBH að versla þann 15. nóv!!! til 18 nóv! fæ í ammlis gjöffffffffffffffff ;) jejejejejejjejeje en svo er ég að spá í að halda afmæliiiiii, kemur í ljós hva ég geti :) læt ykkur vita elskurnar mínar en ég vil bara biðja um eitt!!! að þið komið í afmælið mitt þótt að einhver af ykkur séu kannski ekki "góðar" vínkonur á verðið þið , samt að koma!! ég elska ykkur allar!!!!!! þið eruð það sem gerir líf mitt svona gott :) kv. línaaaaaaaaaaaaa Fínaaaaaaaaaaaaaa :* p.s ég er fulll

» 4 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 11:04:20 / Dagný

...

Halló

  • NENNIR EINHVER AÐ BLOGGA
  • KOMIN MEÐ ÓGEÐ AF FÆRSLUNNI MINNI
  • VEITTI AF BLOGGI FRÁ ÍRISI MIST
  • SAKNA HENNAR!
  • MIKIÐ AÐ GERA
  • BJÓR Í KVÖLD?
  • DJAMM Á LAUGARDAGINN
  • ER AÐ RÚSTA RACHMANINOFF

Seinna:P


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 18:19:57 / Dagný

Ferðasaga...

Gott að vera komin heim til stelpnanna minna:)

Thailand er æðislegt land, mæli með að allir skelli sér þangað einhvern daginn. Það var endalaust nýtt að sjá enda hver dagur fullbókaður. Við fórum t.d á fljótamarkað þar sem fólkið bjó bara á fljótinu, eins skonar samfélag og lifði svo á því að selja túristum mat, föt, minjagripi o.fl. Í Thailandi er einnig mikið um lady-boys eins og það er kallað og fallegustu kvennmennirnir voru því í mörgum tilfellum karlmenn. Markaðirnir voru vinsælastir hjá okkur systrum : ALLT hægt að fá og 10 sinnum ódýrara en hérna heima... stórskuldug eftir þessa ferð :/ Við fórum einnig reglulega í nudd og handa & fótsnyrtingu, kostaði náttúrlega engann pening svo maður lét eftir sér dekur á hverjum degi.Á afmælinu hennar Kristínar fórum við mæðgur svo á eina voða fína nuddstofu þar sem þær tóku okkur í heilnudd og andlistskrúbb, gerist ekki betra. Það þurfti að nýta öll typpi svo við skelltum okkur öll til tannlæknis, skoðunin ókeypis að sjálfsögðu, held að bara hún kosti einhvern 10.000kall hérna heima. Mamma og pabbi fóru með þetta alla leið og fóru bæði í tannhvítun:haha: Svo var farið til klæðaskera og látið sauma á sig sem var að sjálfsögðu ekki eins ódýrt og margt annað en þó alltaf ódýrara en heima. Á ströndinni skelltum við okkur á bananabát: pabbi, Kristín og ég. Pabbi var ekki lengi að gefast upp, hann vissi ekkert hvað hann var að fara útí og hélt að þetta væri miklu auðveldara en neibb þetta var skemmtilegasti bananabátur sem ég hef farið á. Var með okkur alveg í hálftíma og það var nánast ómöguleg að halda sér uppá honum. Strákarnir (tvíburar systur minnar) fengu svo að vera með kallinum á bátnum, það var alveg toppurinn:) Dýragarðurinn var líka æðislegur, þó sérstaklega fyrir litlu kúta. Þar tókum við mynd af okkur með öpum, slöngum, tígristýraungum o.fl. Fórum á smá reiðtúr á fílum sem ég mæli ekki með fyrir óþolinmótt fólk þar sem þeir eru endalaust lengi á leiðinni. Að lokum sáum við tígristýra, svína og apashow, já og fengum að gefa tígristýraungum úr pela, krúttlegast í heimi. Einn daginn var farið í vatnsrennibrautagarðinn sem var svo sem ekkert spes sem betur fer, þar sem ég var brennd á lærunum. Ég held að þetta séu svona flest aðalatriðin, verð í alla nótt ef ég á að telja upp hvern einasta hlut. 

Í stuttu mál sagt þá er Thailand eitthvað allt annað en maður býst við. Það er sagt það séu 3 árstíðir: heitt-heitara-heitast og við vorum á heitara... ekki beint gaman að koma heim í rigninguna eftir svona mikla blíðu. Ég hlýt að vera orðin aðeins betri í borða sterkann mat en þó langt frá því að ná thailendingunum8|

Hér hafiði það og þá sleppi ég við það að segja ferðasöguna 50 sinnum...

p.s heljarinna tjútt um helgina, get ekki beðið eftir nánast 3 vikna djamm pásu ;) 


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.08.2007 00:36:45 / Sólveig

Sæl veriði

Ég hef sagt það áður og segi það enn, bloggmenningin er dauð! Ætla nú samt sem áður að skella inn nokkrum línum...

 

Síðasti laugardagur sló öll met sumarsins.. Byrjaði með fyrsta flokks tónlist í boði Cliff Clavin, drykkja fram eftir degi... kannski aðeins of mikil. Afmæli hjá Óla Toll um kvöldið, besta partý sumarsins. Þakka fyrir mig elskan mín:*

 

En já, fimmtudagur, einn dagur í helgina! Enn eitt vinnudjammið á morgun, mikil eftirvænting í gangi. Síðustu skipti hafa endað í svo mikilli vitleysu að ég ætti nú ekkert að vera að tjá mig um það svona opinberlega. Veit það allavega fyrir víst að annað kvöld lofar góðu.

 

Hmmm já, Dagný kemur heim frá Tælandi á þriðjudaginn, mikið verður gott að fá hana heim... loksins J
  

Heyrði í Írisi Mist í fyrradag, lítur allt út fyrir það að ég fari til Danmerkur 11. til 16. október. Hún er í vetrarfríi þannig að hún yrði með mér í Köben allan tíman J (Gleymdi að spurja Íris, ertu komin á vegginn?) Þetta er ekki endanleg dagsetning samt, svo margt sem spilar inn í, á eftir að tékka á vinnunni og svo lítur allt út fyrir það að ég þurfi að fara í enn eina aðgerðina einhvern tíman í október, ég reyni samt að láta þetta allt saman ganga upp. Svo byrja Iceland Airwaves 17. október, sjiii ég er svo spennt! 

 

 

Eeeen ég er farin að gera eitthvað mun sniðugara en þetta...

-

-
-
-
-

» 4 hafa sagt sína skoðun

17.08.2007 14:39:25 / Dagný

THAILAND!

Hæ elskurnar

Langaði bara að kasta smá kveðju á ykkur þar sem ég er ekki búin að heyra í neinum. Thailand er æðislegt land, allt svo fáránlega ódýrt að þið mynduð ekki trúa því! Ég er búin að kaupa kaupa og kaupa... keypti mér 7 skópör og nokkra kjóla bara í dag, hehe:) Á morgun er ég svo að fara að tjékka á hárlengingu, það kostar frá 4000-6000kr íslenskar held ég... sjáum til hvort þau eigi svona ljóst hár:P Svo er maður búin að vera eitthvað í sólbaði (geðveikt veður by the way) en allt of sjaldan samt því það er svo mikið sem maður þarf að upplifa hérna, sjæsen!

En núna verð ég að hætta, segi ykkur ferðasöguna þegar ég kem heim, elska og sakna ykkar mest:*

Ástarkveðja

Dagný :haha:

p.s verðum að fara ferð til Thailands saman í framtíðinni ;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

12.08.2007 22:05:53 / Sólveig

Nýtt númer!

Aldrei þessu vant þá nenni ég ekki að blogga, en vildi bara láta ykkur vita að Íris Mist er komin með danskt bráðabirgðarnúmer (verður með það út þessa viku)

+4550246212

Hún verður svo hugsanlega komin í skype- og msn sambandi á morgun.

 

P.S. Kemur einhver með mér á GusGus á Menningarnótt? :)

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.08.2007 00:33:02 / Lína

ógóóóóóóóó

fyndið!!!
djamm nuna!!!!!!!!
bælesssssssssss

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 51
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 13 ágúst
�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1734 dögum